Hvaða lyf eða úrræði get ég fengið við brjostsviði?
Sæl/ll og takk fyrir fyrirspurnina.
Það eru ýmis lyf til sem þú færð bæði með og án lyfseðils. Oftast er um sömu lyf að ræða.
Þú getur þannig verslað í lausasölu lyf við bakflæðieinkennum sem koma af og til en sértu með viðvarandi vandamál eða greint sjúklegt bakflæði getur þú fegnið lyfin í gegnum lyfseðil frá lækni og þá eru þau niðurgreidd.
Upplýsingar um tegundir bakflæðilyfja færðu hjá lyfsalanum.
Gangi þér vel
Guðrún Gyða Hauksdóttir, hjúkrunarfræðingur