Hafa plastagnir og önnur efni sem borist hafa í vatnið einhver áhrif á líkamann?

Hafa plastagnir og önnur efni sem borist hafa í vatnið einhver áhrif á líkamann?

Hvað varðar plastagnir í vatni þá er það ört stækkandi vandamál  en engar vísindalegar sannanir  eru fyrir því að plastagnir geti haft skaðleg áhrif á heilsu manna enn sem komið er.  Menn eru þó sammála um að það hljóti að geta valdið skaða ef plast safnast upp í vefjum líkamans í einhverjum mæli en ekkert er vitað til dæmis um hversu mikið þyrfti til að valda skaðanum né hver hann nákvæmlega yrði.  Sýnt hefur verið fram á margvíslegan skaða vegna microagna af plasti aðallega í sjávardýrum en frekari rannsóknir þarf að gera til þess að sýna fram á skaðsemi fyrir menn, hægt er að lesa sér betur til um plast og margvísleg mengunaráhrif þess hér.

Með kveðju

Guðrún Gyða Hauksdóttir, hjúkrunarfræðingur