Ég er oft að fá tilfinningu fyrir köldum bletti á læri innanvert og eins og það sé líka blautt kemur oft þegar ég byrja að hreyfa mig samt í hvíld líka þar ég að hafa áhyggjur af þessu?
Sæl/ll og takk fyrir fyrirspurnina
Þetta hljómar eins og blóðflæðið á svæðinu sé eitthvað lakara en annarsstaðar en ef þetta lagast þegar þú hreyfir þig ætti þetta að vera skaðlaust.
Láttu skoða þetta ef það veldur þér vandkvæðum eða áhyggjum.
Gangi þér vel
Guðrún Gyða Hauksdóttir, hjúkrunarfræðingur