Vatn eða sódavatn þegar reynt er að grennast?

Spurning:

Sæll.

Mig langar að spyrja hvort það sé í lagi að drekka sódavatn í staðinn fyrir vatn. Ég er að reyna að grennast.

Með fyrirfram þökkum.

Svar:

Komdu sæll.

Já, já. Hitaeiningalega séð er enginn munur á venjulegu vatni og sódavatni. Bæði vatn og sódavatn gefa 0 hitaeiningar. Höfum hugfast að ástæðan fyrir því að við bætum á okkur aukafitu er tengt því að við neytum fleiri hitaeininga en líkaminn getur losað sig við.

Með kveðju,
Ólafur G. Sæmundsson, næringarfræðingur